Urður Egilsdóttir
Unnar Örn Ólafsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR), segir samningsfund félagsins við Isavia í gær hafa valdið gríðarlegum vonbrigðum. Ótímabundið yfirvinnubann félagsmanna hefst að óbreyttu kl. 16 á morgun.
„Það er í raun ótrúlegt að við höfum ekki náð að sigla þessu í land,“ segir Unnar í samtali við mbl.is en fundurinn stóð fram yfir miðnætti í nótt.
„Það voru gífurleg vonbrigði hvernig fundinum lauk, það er ekki hægt að segja annað.“
Aftur verður fundað á morgun og segir Unnar þann fund vera lokatilraun til þess að koma í veg fyrir yfirvinnubannið.
„Markmiðin eru ennþá þau sömu en það er leitað allra leiða til þess að leysa á hnútinn.“
Félagsmenn FFR eru meðal annars flugöryggisverðir, rafeindavirkjar, smiðir, flugfjarskiptamenn, flugvallareftirlitsmenn og skrifstofufólk.