Vinna er nú hafin við að koma á laggirnar starfshópi Landssambands hestamannafélaga og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem vinna skal að nýliðun innan hestaíþróttarinnar. Frá þessu greinir hestamannatímaritið Eiðfaxi á vefsíðu sinni.
Forsaga málsins er sú að Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti sérstaklega á Landsþingi landssambandsins í nóvember að skipa ætti starfshóp sem falið væri að greina þær áskoranir og hindranir sem eru til staðar fyrir börn og unglinga sem hafa áhuga á að hefja æfingar á hestaíþróttum. Markmið hópsins er að finna leiðir til að auðvelda börnum og unglingum aðgengi að hestaíþróttinni eins og öðrum íþróttagreinum.
Í nefndaráliti æskulýðsnefndarinnar kom fram að starfshópurinn ætti að vera tekinn til starfa eigi síðar en 1. febrúar 2023.
Að sögn Guðna Halldórssonar, formanns LH, er vinnan hafinn og hópurinn að taka á sig mynd. „Kallað var eftir að LH myndi skipa einn fulltrúa í hópinn og ÍSÍ annan, ásamt starfsmönnum ráðuneytisins. ÍSÍ bað okkur um að skipa fulltrúa fyrir hönd ÍSÍ sem hefði betri skilning á málefninu og í hópinn eru þau komin, Hákon Hákonarson, ritari LH, og Edda Rún Ragnarsdóttir, stjórnarmaður LH, en hún er mikill reynslubolti þegar kemur að æskulýðsmálum og reiðkennslu,“ segir Guðni í samtali við Eiðfaxa.
Segir hann hópnum ætlað að greina og kalla til fagaðila hvort sem þeir komi frá ríki, sveitarfélagi eða menntastofnunum og finna út hvernig hægt sé að koma hestaíþróttinni betur inn í almennt barna- og unglingastarf og samræma þessa vinnu meðal annars við frístundakortin.
„Þetta er viðamikið og metnaðarfullt verkefni. Það er öðruvísi að vera með ráðherraskipaðan hóp heldur enn einhverja nefnd innan LH. Þetta hefur meira vægi, meiri stuðning og fjárhagslegan styrk,“ segir Guðni enn fremur.