Aðstoðuðu vélarvana bát í nótt

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu. Mynd úr safni.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu. Mynd úr safni. mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V Gíslason í Grindavík, var ræst út gærkvöldi, eftir að beiðni barst frá 6 tonna bát um aðstoð vegna vélarvandræða. Báturinn var þá staddur suð-vestan við Eldey. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Hélt björgunarskipið úr höfn, til móts við bátinn, með fimm manna áhöfn rétt fyrir miðnætti.

Oddur V var kominn að bátnum rétt fyrir klukkan 2 í nótt, og með aðstoð áhafnar Odds V tókst að koma vél bátsins í gang og sigldi hann þá fyrir eigin vélarafli. Oddur V fylgdi honum áleiðs, en stefnan var tekin til Grindavíkur.

Klukkan 3 í nótt drapst aftur á vél bátsins og var þá ákveðið að taka hann í tog og gekk það verkefni vel. Siglingin inn til Grindavíkur tók hins vegar dágóða stund og kom Oddur V til hafnar klukkan rétt rúmlega 7 í morgun með bátinn í togi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert