Bjartur Haralds vakti athygli fyrir hugrekki sitt og ástríðu í Dagmálum í fyrra en þar ræddi hán um það hvernig er að vera kynsegin unglingur á Íslandi í dag.
Bjartur sagði meðal annars frá því hvernig var að koma út úr skápnum 10 ára gamalt, bæði fordómum og stuðningi sem hán hafði fundið fyrir og þeirri von um að skilningur Íslendinga á hinseginmálefnum sé að aukast.
„Það besta sem þú getur gert er að leyfa mér að vera til. Ef þú ert ekki viss um hvernig þú átt að segja eitthvað eða tala um eitthvað þá má alveg spyrja, maður verður ekkert reiður. Besta spurningin sem ég fæ er: Hvaða fornöfn notar þú?“ sagði Bjartur meðal annars.
Hér má sjá allt viðtalið við Heklu Bjart.