„Þetta er bara fullkomlega afgerandi niðurstaða og ánægjuleg. Allt er gott sem endar,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Miðlunartillaga setts ríkissáttasemjara var samþykkt í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Eflingar og aðildarfélaga SA en atkvæðagreiðslunni lauk í dag. Miðlunartillagan hefur tekið gildi sem kjarasamningur milli aðila.
„Þessi afgerandi niðurstaða beggja vegna borðs staðfestir málflutning Samtaka atvinnulífsins um að félagsmenn Eflingar hafi frá öndverðu viljað greiða atkvæði um SGS-samninginn,“ segir Halldór.
Hann segir að í ljós hafi komið að SGS-samningurinn njóti yfirgnæfandi meirihluta stuðnings Eflingarfélaga.
„Allt tal um Eflingarsamning fyrir Eflingarfólk endaði á þeim nótum að það náðist breið sátt um SGS-samning fyrir SGS-fólk.“