Framgangan ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórn vegna breytinga á reglugerð um rafvarnarvopn var ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti, að mati umboðsmanns Alþingis. Er í því sambandi einkum horft til þess að forsætisráðherra hafði látið í ljós ósk sína um að málið yrði rætt á fundi ríkisstjórnar. 

Umboðsmaður hefur nú lokið athugun sinni á málinu með bréfum til forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, að því er fram kemur á vefsíðu embættisins.

Í bréfi til forsætisráðherra minnir umboðsmaður hann á að reglur stjórnarskrár og laga um Stjórnarráð Íslands miði að því að tryggja viðhlítandi samstarf og samvinnu milli ráðherra þannig að ríkisstjórn starfi samhent að stefnumálum sínum. 

Láti ráðherra farast fyrir að virða þessar reglur feli það ekki eingöngu í sér brot á formreglu heldur stuðli slík háttsemi að því að það pólitískt samráð, sem lög og stjórnarskrá mæli fyrir um að fram skuli fara á vettvangi ríkisstjórnar, sé sniðgengið.

Hafi þýðingu fyrir traust almennings

Í þessu samhengi sé það jafnan í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að ráðherra nýti eftir föngum vettvang ríkisstjórnar til samráðs við aðra ráðherra og til að jafna hugsanlegan ágreining. Slík vinnubrögð hljóti einnig að vera til þess fallin að ráðherrar skiptist síður á skoðunum á opinberum vettvangi og ríkisstjórn birtist borgurunum sem samhentur hópur stjórnenda.

Þetta hafi því þýðingu fyrir það traust sem almenningur eigi að geta borið til þess að æðsta stjórn landsins vinni mál og afgreiði af fagmennsku og yfirvegun. Í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi voru í málinu verði ekki betur séð en framganga dómsmálaráðherra hafi verið ósamrýmaleg kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti. Er í því sambandi einkum horft til þess að forsætisráðherra hafði látið í ljós ósk sína um að málið yrði rætt á fundi ríkisstjórnar.“

Umboðsmaður ósammála Katrínu

Umboðsmaður lýsir sig jafnframt ósammála skoðun forsætisráðherra um að vandséð sé að ekki verði lengra gengið í sérstöku verklagi viðvíkjandi því hvort og hvernig má ráðherra séu borin upp í ríkisstjórn.

Í starfsreglum ríkisstjórnar megi t.d. kveða með skýrari hætti á um skyldur ráðherra að þessu leyti. Að lokum bendir umboðsmaður á að í núgildandi siðareglum fyrir ráðherra, sem hann hafi eftirlit með, sé ekkert fjallað um siðferðilegar skyldur ráðherra m.t.t. samvinnu og samskipta þeirra sín á milli, hvort heldur sem er innan eða utan ríkisstjórnarfunda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka