Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að veita styrk upp á 71 milljón króna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), til að tryggja fæðuöryggi í landinu. Neyðarástand hefur skapast í landinu eftir að fellibylurinn Freddy reið yfir landið.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að framlagið verði nýtt af Malavísku stjórnvöldum til björgunaraðgerða, flutnings á neyðargögnum og matarkaupa en þúsundir íbúa reiða sig á matvælastuðning í kjölfar hamfaranna.
Í landinu hafa 160 þúsund manns hafa misst heimili sitt. Staðfest dauðsföll eru nú um 270 og fjöldi særðra er komin í áttunda hundrað.
„Þegar óvænt neyð skapast í samstarfsríki okkar, eins og í þessu tilviki, kallar hún á skjót viðbrögð okkar.“ lýsir Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, yfir í tilkynningunni.
Utanríkisráðherra heimsótti Malaví í desember seinastliðinn og sá afrakstur samstarfsverkefna Íslands og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í landinu en Malaví hefur verið í tvíhliða samstarfi við Ísland í 33 ár.