Loftmengun við leikskólann Lund í Reykjavík fór aftur yfir heilsuverndarmörk í morgun samkvæmt loftgæðaupplýsingakerfi Umhverfisstofnunar. Klukkan níu í morgun fór klukkustundargildi svifryks upp í 241,7 míkrógrömm á rúmmetra og klukkutíma síðar var gildið 161,1.
Þess ber að geta að til þess að loftmengun fari yfir heilsuverndarmörk þarf klukkustundargildið að fara yfir 50 míkrógrömm á rúmmetra. Á hádegi var klukkustundargildið um 103,8 míkrógrömm á rúmmetra en um eittleytið var það komið niður í 22,5.
Þá fór svifryksmengun einnig yfir heilsuverndarmörk í morgun við Vesturbæjarlaug, Grensásveg, Laugarnes og Dalsmára í Kópavogi.
Í gær gaf heilbrigðiseftirlitið út viðvörun þar sem mælst var til þess að þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna.
Mældist þá klukkustundargildið við leikskólann um 427,7 míkrógrömm á rúmmetra klukkan 16. Í samtali við mbl.is sagði Svava S. Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, tölurnar hjá Lundi þær verstu sem hún hafi séð í Reykjavík á þessu ári.