Landsréttur hefur dæmt Bláskógabyggð að greiða Sigríði Jónsdóttur kennara eina milljóna króna í miskabætur vegna ólögmætrar áminningar og uppsagnar.
Í málinu krafðist Sigríður fjögurra milljóna í miskabætur auk tæpra 35 milljóna króna í skaðabætur vegna atvinnutjóns, en þeirri kröfu var vísað frá vegna vanreifunar. Einnig krafðist Sigríður þess að áminning sem hún fékk árið 2016 og uppsögn sem hún fékk í kjölfar áminningarinnar yrðu dæmdar ógildar.
Sigríður var áminnt fyrir „ámælisverða háttsemi á kennarafundi“. Henni var síðan sagt upp í kjölfar þess að hún skrifaði grein í tímarit. Skólastjóri taldi greinina fela í sér grófar ásakanir á hendur samstarfsmanna.
Landsréttur telur greinina rúmast innan tjáningarfrelsisákvæðis stjórnarskrárinnar og voru áminningin og uppsögnin því dæmdar ólögmætar. Auk þess telur Landsréttur að skólastjórinn hafi verið vanhæfur í skilningi stjórnsýslulaga til að taka ákvörðun um uppsögnina.
Ásamt því að greiða Sigríði miskabætur þarf sveitarfélagið að greiða 5.800.000 krónur í málskostnað.
Sigríður greinir frá dómnum á Facebook-síðu sinni.
„Enginn lifir án peninga en það er líka hundalíf að vera án mannréttinda, en þau hef ég nú endurheimt. Samkvæmt Landsrétti er tjáningarfrelsi á Íslandi. Til hamingju Ísland,“ skrifar Sigríður.