Lögregla telur ólíklegt að andlát það sem greint var frá í morgun hafi borið að með saknæmum hætti.
Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.
„Það virðist vera ólíklegt að þetta andlát sé af mannavöldum,“ segir Grímur sem tekur þó fram að frekari rannsókn á atvikum eigi eftir að fara fram. Enn eigi eftir að yfirheyra fleiri.
Að sögn Gríms barst lögreglu útkall vegna hávaða úr íbúð í Þingholti í morgun en hann gat ekki staðfest hvort það hafi verið eina útkallið frá svæðinu.
Þegar lögreglu bar að garði reyndust þrír menn vera í íbúðinni. Einn þeirra var meðvitundarlaus og með litlum lífsmörkum. Grímur kvaðst ekki geta greint frá því hvort maðurinn hefði verið með einhverja áverka þegar lögregla mætti á vettvang.
Grímur segir skýrslutöku enn standa yfir og því lítið sem lögregla geti greint frá að svo stöddu.