Kjarasamningur Rafiðnaðarsambands Íslands og Félag vélstjóra og málmtæknimanna við Orkuveitu Reykjavíkur var undirritaður í dag í húsnæði Ríkissáttasemjara.
Kynning á samningnum mun fara fram í Ráðstefnusal OR miðvikudaginn 22. mars klukkan 12-13, að því er fram kemur í tilkynningu.
Kosning um kjarasamninginn hefst á morgun klukkan 16 og stendur yfir til 27. mars klukkan 16.