„Það ríkir mikil sorg í samfélaginu en þarna eru þrjú lítil börn sem koma nærri,“ segir séra Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur í Fellsmúlaprestakalli í Suðurprófastsdæmi, en bænastund var í Kálfholtskirkju í gær vegna andláts mannsins sem lést af slysförum á föstudag er hann var að vinna við dráttarvél.
Halldóra segir að afskaplega vel hafi verið mætt á bænastundina.
„Það var full kirkja. Tilefnið var að veita sorginni og þessum lamandi fréttum farveg og sýna samhygð og samstöðu við þessar skelfilegu aðstæður.“
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en lögregla verst allra frekari frétta af málinu að svo stöddu.