Í gærkvöldi voru björgunarsveitir frá Þingeyri, Flateyri og Ísafirði kallaðar út til aðstoðar fólki á Dynjandisheiði.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að skollinn hafi verið á þreifandi bylur og skyggni hafi verið lítið sem ekkert.
Björgunarsveitarfólk fetaði sig upp á heiðina og upp úr klukkan 23 var komið að bílunum.
Um var að ræða starfsmenn verktaka sem voru á leið í vinnubúðir við Mjólkárvirkjun, og ferðamenn, ásamt moksturstæki.
Fólkið var flutt í bíla björgunarsveita og um klukkan hálf tólf var haldið af stað niður af heiðinni.
Í tilkynningunni segir að ferðin hafi gengið hægt og aðstæður hafi verið mjög krefjandi, „þreifandi bylur og sama sem ekkert skyggni og bílalestin mjakaðist metra og metra í einu“.
Seint í nótt kom hópurinn síðan niður af heiðinni, starfsmenn verktakans komust í hús við Mjólká, en þrír farþegar fengu far með björgunarsveit inn á Þingeyri, þar sem þeim var útveguð gisting.
Samtals voru þetta tólf einstaklingar sem voru aðstoðaðir niður af Dynjandisheiði og lauk aðgerðum rétt fyrir klukkan 4 í nótt.