Ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru til rannsóknar hjá embættinu. Ríkisútvarpið segir frá.
Maðurinn hefur lengi starfað sem lögreglumaður, meðal annars í kynferðisbrotadeild. Heimildir ríkisútvarpsins herma að kvartanir hafi borist eftir viðburð hjá starfsfólki lögreglunnar.
Litlar upplýsingar hafa fengist um málið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en Margrét Kristín Pálsdóttir, staðgengill lögreglustjóra, segir að enginn yfirlögregluþjónn hafi verið sendur í leyfi vegna málsins.