Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur farið í þrjú útköll í dag, tvö að Langjökli og eitt á Dalvík.
„Það er óvenjulegt, og sem betur fer ekki algengt, að það séu þrjú útköll sama daginn. Það er gott veður og það eru margir á ferli. Oft við slíkar aðstæður eru útköllin mörg, eins og raunin hefur verið í dag,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
Fyrsta útkallið barst laust fyrir klukkan ellefu í morgun vegna alvarlegs fjórhjólaslyss við Hlöðuvallaveg undir Langjökli. Einn var fluttur á slysadeild eftir slysið.
Um þrjúleytið barst seinna útkallið að jöklinum.
Þá var um að ræða vélsleðamann sem slasaðist við Jarlhettur, í nágrenni Langjökuls. Þyrlan var komin þangað rétt fyrir klukkan fjögur. Aftur var um að ræða alvarlegt slys.
Á fimmta tímanum var þyrlan aftur kölluð vegna vélsleðaslyss vestan við Dalvík. Ekki er talið að vélsleðamaðurinn sé alvarlega slasaður.