Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir skömmu vegna vélsleðaslyss vestan við Dalvík.
Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
Vélsleðamaðurinn er ekki talinn vera alvarlega slasaður en staðsetning hans er þess eðlis að nauðsynlegt þykir að sækja hann með þyrlu.
Ekki er ljóst hvort hann verður fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri eða til Reykjavíkur.
Útkallið er það þriðja hjá sveitinni í dag.