Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Suðurlandi á undanförnum árum. Hvolsvöllur er þar engin undantekning og er nýr miðbær í mótun.
Íbúum hefur fjölgað umtalsvert en lengi vel bjuggu um 1.700 íbúar á svæðinu. Í fyrsta skipti síðasta haust taldi svæðið yfir 2.000 íbúa.
Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri á Hvolsvelli, segir uppbyggingu innviða þurfa að fylgja og að í byggingu sé einn stærsti leikskóli landsins.
Leikskólinn er hannaður af P Ark teiknistofu í Reykjavík.
„Leikskólinn mun bera átta deildir og hafa pláss fyrir 160 börn. Hann er svo byggður með stækkunarmöguleika upp í tíu deildir en í dag erum við með rúmlega 100 leikskólabörn,“ segir Anton Kári.
„Við fáum skólann afhentan í maí og það er allt á áætlun. Hann hefur hlotið nafnið Leikskólinn Aldan.“