Urður Egilsdóttir
Að minnsta kosti þrjú snjóflóð hafa fallið í Neskaupstað í nótt og í morgun. Þetta staðfestir Magni Hreinn Jónsson, fagstjóri ofanflóða á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Þriðja flóðið sást um áttaleytið í morgun. Neyðarstigi Almannavarna hefur verið lýst yfir í Neskaupstað.
„Það er augljós snjóflóðahætta í fjallinu og vitað um þessi þrjú snjóflóð,“ segir hann og bætir við að líklegt þyki að fleiri flóð hafi fallið.
Skyggnið er slæmt á svæðinu en Magni segir að veðrið fari skánandi um og eftir hádegi.
„En það er úrkoma og vindur þarna alveg fram á kvöld.“