Ekki er útlit fyrir að umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað verði rýmt vegna snjóflóðahættu. Þetta segir Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar á Austurlandi, í samtali við mbl.is.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði við mbl.is fyrr í dag að mögulegt væri að einhver hluti spítalans yrði rýmdur en fjölmörg hús á svæðinu hafa þegar verið rýmd.
Rýmingaráætlunin hefur verið gerð til vonar og vara en Guðjón segir ólíklegt að þörf sé á rýmingu húsnæðisins eins og staðan er nú. „Það er metið þannig að það sé ekki þörf á því eins og sakir standa,“ segir hann.
Um 500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu.