Björgunarfólk við Fagrafell er nú að ganga frá á slysstað eftir að tveir göngumenn óskuðu eftir aðstoð klukkan 2 í nótt.
Mennirnir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðsheiði við Eyjafjallajökul er annar féll niður nokkurn spöl og hinn varð í sjálfheldu. Sá síðari komst ekki niður til þess sem féll.
Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að björgunarsveitir af Suðurlandi voru boðaðar á hæsta forgangi í verkefnið, og var fyrsta björgunarfólk komið á slysstað um klukkan 02:20.
Slysið varð í miklu brattlendi og erfitt var fyrir björgunarfólk að komast að slysstað. Undanfarar, sérhæfðir í fjallabjörgun,frá höfuðborgarsvæðinu voru því kallaðir út ásamt því að óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunnar.
Tryggja þurfti björgunarfólk á svæðinu með siglínum og færa þann sem slasaðist, svo öruggara væri að komast að þeim sem var fastur ofar í hlíðinni.
„Fljótlega varð ljóst að einfaldast væri að komast að þeim sem var í sjálfheldu úr þyrlu, og þegar þyrla kom á svæðið, sem var austur á Egilstöðum, var sá sóttur, og síðan sá slasaði hífður um borð í þyrlu,“ segir í tilkynningunni.