Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austfirði á fimmtudaginn.
Veðurspár gera ráð fyrir talsverðri eða mikilli snjókomu eða skafrenning með þungri færð og lélegu skyggni. Miklar líkur eru á samgöngutruflunum.
Nokkur snjóflóð hafa fallið á Austfjörðum síðastliðna tvo sólarhringa. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Austfjörðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði og Eskifirði.
Í kvöld og á morgun verður svo gul viðvörun í gildi á Suður- og Suðausturlandi. Á Suðurlandi verður austanátt 18-25 m/s undir Eyjafjöllum með mjög snörpum vindhviðum, en hægari vindur verður annars staðar á svæðinu. Á Suðausturlandi verður austanátt 15-23 m/s með snörpum vindhviðum og hvassast verður vestan Öræfa.