Flóð féll yfir veg við gangamunnann Norðfjarðarmegin við Norðfjarðargöng í gær. Göngin hafa verið lokuð í frá því í gær vegna gildandi snjóflóðahættu. Veðurspá á svæðinu fer versnandi frá miðvikudegi og því ekki við að búast að raunum Norðfirðinga, Seyðfirðinga og Eskifirðinga sé lokið.
Ólíver Hilmarssonar, hjá snjóflóða- og skriðuvakt Veðurstofu Íslands. segir það ekki í fyrsta sinn sem að sem flóð falli við göngin, þrátt fyrir að lítill varnargarður sé við gangamunnann. Hann segir mikinn snjó allstaðar í kring en að unnið sé að því að opna vegi til að koma björgum á milli.
Ólíver segir hættuna ekki liðna hjá og bendir á að veðurspá á Austfjörðum í lok vikunnar sé ekki björt. Mjög mikilli úrkomu er spáð á fimmtudag og föstudag, sem geri snjóflóðahættuástand illt verra.
„Það má alveg búast við að það verði viðvarandi snjóflóðahætta fram á helgi,“ segir Ólíver og bætir við „Það er smá pása núna, í einn sólarhring kannski, áður en næsti hvellur kemur“.
Aðspurður hvort búist sé við snjóflóðahættu á fleiri stöðum á svæðinu, segir Ólíver að það sé eitthvað sem þurfi að skoða en að það velti allt á veðurspá næstu daga. Fari veður hlýnandi sé önnur ógn sem steðji mögulega að.
„Ef það verður hlýtt og mikil rigning þá gæti orðið votflóð- og krapaflóðhætta, en við þurfum bara aðeins að skoða spánna“
Krapaflóð er að sögn Ólívers einskonar vatnsblandað snjóflóð. Flóðin komi oft með lækjafarvegi og því séu það aðrir staðir sem geti verið í hættu.
Eins og er segir hann þó aðeins útlit fyrir snjókomu og hættustig sé því aðeins á þeim stöðum sem hefur verið greint frá, Eskifirði, Seyðisfirði og Neskaupstað.
Aðspurður hvort snjóflóðahætta sé víðar á landinu segir Ólíver ekki vera hættu í byggð annarstaðar. töluverð hætta sé til fjalla meðal annars á Tröllaskaga og norðanverðum Vestfjörðum og því vert að biðla til fjalla- og skíðafólks að fara með gát.