Víðáttumikil lægð liggur langt suður í hafi og færir okkur austlæga átt í dag með stöku éljum fyrir austan, en að mestu skýjað og þurrt vestanlands.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Allhvass vindur syðst, en hægari annars staðar. Í kvöld nálgast skil sem fylgja lægðinni og bætir þá í vindinn syðst og byrjar að snjóa þar.
Frost verður víða 0 til 8 stig, en frostlaust suðvestantil yfir daginn.
Í nótt og á morgun stefnir í austan hvassviðri eða storm með suðurströndinni þar sem hvassast verður undir Eyjafjöllum og í kringum Öræfi. Með þessu fylgir líklega snjókoma og skafrenningur svo búast má við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.
Þegar líður á morgundaginn hlýnar í veðri þegar hlýr loftmassi kemur úr suðri mog breytist þá úrkoman yfir í slyddu eða rigningu á sunnanverðu landinu.
Annað kvöld færist síðan úrkomubakki yfir suðaustanvert landið og Austfirði og má búast við talsverðri slyddu eða snjókomu þar fram á fimmtudag.