Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan fjögur í nótt vegna tveggja göngumanna við Fagrafell í nágrenni Seljalandsfoss.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við mbl.is að annar mannanna hafi verið í sjálfheldu og hinn hafi runnið.
Þyrlan var á Egilsstöðum í nótt og var kölluð út þaðan.
Að sögn Ásgeirs er þyrlusveitin nýkomin á staðinn og verið er að vinna í því að koma mönnunum um borð.
Fréttin hefur verið uppfærð.