Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur boðað til tuga opinna funda um land allt í vor sem munu einungis fjalla um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu.
Fyrstu fundirnir fóru fram á Suðurnesjum í vikunni þar sem Kristrún mætti sjálf til leiks, þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi.
Fundirnir eru opnir öllum og eru fyrsta skrefið í nýju og viðamiklu málefnastarfi sem Kristrún kynnti á flokksstjórnarfundi á dögunum, að því er kemur fram í tilkynningu.
„Heilbrigðismálin og öldrunarþjónustan verða í forgrunni hjá okkur núna og alveg fram á haust. Við byrjum vinnuna með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu og okkur fannst við hæfi að hefja fundaferðina á Suðurnesjum — þar sem heilbrigðismálin hafa svo sannarlega brunnið á íbúum,“ segir Kristrún í tilkynningunni eftir fyrstu fundina sem voru í Reykjanesbæ, í Garði og í Grindavík.
Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu auk forystufólks flokksins, bæði á Alþingi og í sveitarstjórnum.
„Ég hélt sjálf fjölda opinna funda um land allt á síðasta ári sem höfðu mikil áhrif á mig. Svona viljum við gera þetta og við tökum vinnuna alvarlega. Nú undirbúum við breytingar á sviði heilbrigðismála enda ekki vanþörf á,“ bætir Kristrún við.
Hún leggur áherslu á að öllum sé velkomið að mæta á fundina og taka þátt. Ekki verði spurt um flokksskírteini fólks. „Við viljum opna flokkinn og leggja áherslu á að taka samtal við fólkið í landinu. Fólk með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu er auðvitað sérstaklega velkomið en sama gildir um alla almenna borgara sem vilja breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi,“ segir Kristrún og bætir við að þetta samtal sé aðeins upphafið að viðameiri vinnu.