Páll Orri Pálsson, meistaranemi í lögfræði hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Heimdallar - félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, en Lovísa Ólafsdóttir, hagfræðinemi býður sig fram til varaformanns með honum.
Páll Orri er 24 ára uppalinn Keflvíkingur sem er á sínu lokaári í meistaranámi í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur verið virkur í ungliðastarfi flokksins um árabil, sat í stjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Keflavík og hefur setið í framkvæmdastjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna frá árinu 2019. Þá sat hann í aðalstjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja öll sín menntaskólaár og gegndi embætti formanns síðasta árið sitt.
Lovísa er 21 árs hagfræðinemi við Háskóla Íslands sem situr í stjórn Ökonomiu, félags hagfræðinema við skólann. Áður gekk Lovísa í Verzlunarskóla Íslands og var þar virk í félagsstarfinu, sat hún í stjórn Nemó og var í MORFÍs liði skólans og sigraði keppnina, ásamt liðinu, árið 2019.
„Heimdallur er mikilvægt afl innan Sjálfstæðisflokksins, hvort tveggja sem vettvangur fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á starfi flokksins og vill taka þátt og einnig afl til að veita kjörnum fulltrúum aðhald. Ég vil að Heimdallur verði leiðandi ungliðahreyfing í Reykjavík og hafi áhrif innan flokksins sem og utan hans. Að mínu mati er nauðsynlegt að veita ríkjandi öflum kröftugt aðhald. Það er til dæmis nóg komið af harmleik borgarstjórnar Reykjavíkur og er aðhaldsins sannarlega þörf þar.” segir Páll Orri.
Ásamt Páli og Lovísu bjóða eftirfarandi einstaklingar sig fram í stjórn:
Þá bjóða eftirfarandi einstaklingar sig fram í varastjórn: