Dregið hefur úr snjóflóðahættu á Austfjörðum eftir að fór að hlýna til fjalla, en krapaflóðahætta hefur aukist. Ekki er talin hætta á skriðum, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Lögreglan fundaði með Veðurstofunni í morgun þar sem farið var yfir og hugsanlegar afléttingar á rýmingum. Enn er verið að meta aðstæður en þó er gert ráð fyrir afléttingum eftir hádegi í dag. Ekki ljóst hversu víðtækar þær verða.
Sem fyrr er vel fylgst með mælum í hlíðum ofan Seyðisfjarðar. Hreyfing hefur ekki mælst og grunnvatnsstaða er lág.
Það styttir upp um hádegið og kólnar þegar líður á daginn og þá dregur frekar úr snjóflóðahættu og einnig krapaflóðahættu.