Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, leggja nú leið sína til Neskaupstaðar þar sem þau munu funda og snæða hádegismat með sveitarstjórn og viðbragðsaðilum.
Eins og áður hefur verið greint frá var öllum eftirstandandi rýmingum vegna snjóflóðahættu aflétt í Neskaupstað í gær og var hættustigi á Austfjörðum einnig aflétt. Óvissustig vegna ofanflóðahættu er þó áfram í gildi.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, mun ferðast í samfloti með ráðherrunum austur og verður einnig viðstaddur fundinn. Á fundinum munu aðilarnir ræða stöðuna og fara yfir verkferla og framhaldið.
Að fundi loknum munu ráðherrar fara um Neskaupstað og virða fyrir sér aðstæðurnar og þau svæði þar sem að flóðin féllu.