Riða hefur verið staðfest á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Þetta er í fyrsta skipti sem riða greinist í Miðfjarðarhólfi.
Á bænum eru 690 kindur og verður þeim lógað eins fljótt og kostur er. Höfðu bændur á Bergsstöðum samband í síðustu viku við Matvælastofnun og tilkynntu um veikar kindur með einkenni sem gætu bent til riðu og hefur það nú verið staðfest. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST.
Fram kemur að verið sé að undirbúa aðgerðir, en greiningin hefur það í för með sér að nú telst Miðfjarðarhólf sýkt svæði.
Eftir tilkynningu bændanna fór starfsfólk MAST á bæinn og tók sýni. Voru þau svo send í greiningu á Tilraunastöð HÍ að Keldum sem staðfesti greininguna.
Sýni verða tekin úr fénu til rannsóknar á riðu og greina arfgerð fjárins. Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og áhersla lögð á að rekja hvert kindur af bænum hafa verið fluttar. Í ljósi þess að mest hætta er á smiti við sauðburð er mikilvægt að þeim kindum verði einnig lógað sem fyrst.
Í Miðfjarðarhólfi hefur aldrei greinst riða fyrr. Það því fallið undir skilgreininguna ósýkt svæði, sbr. reglugerð um útrýmingu á riðuveiki. Breytist nú sú skilgreining sem fyrr segir. Það hefur í för með sér að óheimilt er að flytja sauðfé milli hjarða í hólfinu og hvaðeina annað sem borið getur smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla, hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold. Enn fremur er óheimilt að hýsa aðkomufé, fóðra það eða brynna því með heimafé.