Vefmiðli Fréttablaðsins hefur nú verið lokað líkt og sjá má á skjáskotinu hér að ofan.
„Síðasta fréttin hefur verið birt. Fréttablaðið og Fréttablaðið.is þakka samfylgdina og bendum lesendum okkar á að fréttir verða áfram sagðar á DV.is og Hringbraut.is,“ er ritað á vefsíðunni.
Útgáfufélagið Torg sendi frá sér yfirlýsingu á föstudag um að útgáfu Fréttablaðsins yrði hætt og fréttavefnum lokað.