Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun við Faxaflóa vegna suðaustan storms á morgun.
Viðvörunin tekur gildi klukkan 14 á morgun og er í gildi til klukkan 19.
„Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, t.d. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli,“ segir á vef Veðurstofunnar og því má búast við varasömu ferðaveðri.