Atlantshafsbandalagið hefur lokið starfi sínu við Íslandsstrendur þar sem floti á hennar vegum hefur verið við tundurduflaleit í sex daga í Hvalfirði og á Faxaflóa.
„Við fundum ýmislegt en ekki tundurdufl og getum því sagt að engin tundurdufl séu í Hvalfirði,“ segir norski flotaforinginn Ole Torstein Sjo í samtali við Morgunblaðið.
Á meðal þess sem þó fannst var net málmhluta sem litu út eins og tundurdufl en var ætlað að rugla mælitæki þýskra kafbáta og hindra för þeirra í seinni heimsstyrjöld.