Eftirför lögreglu endaði uppi á grasi

Maðurinn var handtekinn fyrir utan bíl sinn.
Maðurinn var handtekinn fyrir utan bíl sinn. Ljósmynd/Aðsend

Eftirför lögreglu endaði með því að maður var handtekinn við bíl sinn á gömlu Hringbraut nærri BSÍ.

Bíllinn endaði uppi á grasi en sjónarvottur segir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi verið eltur af lögreglu á þremur lögreglubílum á Sæbraut og á Lækjargötu. Síðan hafi sérsveitarbíl og ómerktur lögreglubíll bæst við.

Lögregla hefur ekki veitt upplýsingar um málið að svo stöddu.

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert