Frá miðnætti hafa um sjötíu skjálftar mælst við Herðubreið. Stærsti skjálftinn var 1,9 að stærð.
Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir skjálftahrinuna ekki koma á óvart.
„Þetta er hluti af þeirri hrinu, með hléum, sem hefur verið síðan í fyrra,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is.