Alls bárust 18 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar og viðskiptaráðuneytinu.
Staðan var auglýst þann 17. mars og umsóknarfrestur rann út þann 31. mars.
Á meðal þeirra sem sækja um starfið eru Laufey Guðjónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, og Þröstur Helgason, fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 1.
Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. maí 2023, að því er kemur fram í tilkynningu.
Listinn yfir umsækjendur:
Aino Freyja Jarvela, forstöðumaður
Ari Matthíasson, deildarstjóri
Arna Kristín Einarsdóttir, dagskrárstjóri Gautaborgarsinfóníunnar
Ásgerður Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri
Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir, BA í guðfræði
Baldur Þórir Guðmundsson, viðskiptafræðingur
Björg Erlingsdóttir, fv. sveitarstjóri
Bryndís Jónatansdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur
Gústaf Þórarinn Bjarnason, auglýsinga- og sölustjóri
Hildur Jörundsdóttir, sérfræðingur
Ingibjörg Þórisdóttir, kynningarstjóri
Laufey Guðjónsdóttir, fv. forstöðumaður
Lárus Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Rúnar Leifsson, sérfræðingur
Vera Ósk Steinsen, tónlistarkennari, MA og BFA
Wesley Chang Zeyang, partner
Þröstur Helgason, fv. dagskrárstjóri
Þröstur Óskarsson, sérfræðingur