Beint: Tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag fer fram kynning á skýrslu starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um stöðumat og áskoranir varðandi mat og endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár.

Kynningin fer fram í Kaldalóni í Hörpu klukkan 10 og verður hægt að fylgjast með kynningunni í beinu streymi hér að neðan. 

Starfshópurinn var skipaður í kjölfar þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi í mars 2021. Hópurinn hefur skilað Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skýrslu sinni. 

Á fundinum í dag verða kynntar helstu niðurstöður skýrslunnar og dregnar fram þær áherslur og verkefni sem nauðsynlegt er að halda áfram með, eða ráðast í innan málaflokksins á komandi árum til að auka seiglu íslensks samfélags og draga úr tjóni vegna náttúruvár, ekki síst vegna áhrifa loftslagsbreytinga.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert