Sævar Jónsson, viðskiptafræðingur og fv. framkvæmdastjóri Loftorku í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 7. apríl sl., 73 ára að aldri, í faðmi fjölskyldu sinnar.
Sævar fæddist í Reykjavík 28. mars 1950, sonur Þorgerðar Jónsdóttur frá Neðri-Svertingsstöðum í Miðfirði og Jóns Friðrikssonar frá Stóra-Ósi, einnig í Miðfirði. Systkini Sævars lifa bróður sinn, þau Friðrik og Sólrún.
Sævar gekk í Breiðagerðisskóla og síðan Réttarholtsskóla. Hann var í fyrsta árgangi Menntaskólans við Hamrahlíð, MH, haustið 1966. Lauk þaðan stúdentsprófi 1970, við fyrstu brautskráningu skólans.
Sævar útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1975. Hann var í fullu starfi hjá Loftorku í Reykjavík í 44 ár, eða allt til ársins 2016 er hann varð að láta af störfum eftir alvarlegt slys. Starfaði Sævar lengst af sem framkvæmdastjóri Loftorku.
Hann var virkur í starfi knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Garðabæ í áratugi og kom að ýmsum stórum verkefnum með mikla reynslu sem verktaki. Sat í aðalstjórn, var í byggingarnefnd Stjörnuheimilisins og vallarstjórn knattspyrnuvallanna, svo dæmi séu nefnd.
Sævars var minnst með mínútuþögn fyrir leik Stjörnunnar og Víkings í Bestu deild karla 10. apríl sl. og leikmenn Stjörnunnar léku með sorgarbönd í leiknum.
Eftirlifandi eiginkona Sævars er María Gunnarsdóttir, leikskólakennari að mennt. Börn þeirra eru Jón Gunnar, f. 1973, Ásmundur, f. 1974, Atli, f. 1981, og Jóhanna, f. 1985. Barnabörnin eru átta.
Útför Sævars verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ 24. apríl kl. 13.