Lögreglan á Suðurlandi er með til rannsóknar mál sem kom upp eftir að barn innbyrti fíkniefni dulbúið sem sælgæti og veiktist í kjölfarið. Barnið var flutt á heilbrigðisstofnun og „ekki annað vitað“ en að það muni ná sér að fullu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Sagt er að um „hlaup fígúrur“ að ræða og að það sé markaðssett fyrir börn.
„Til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi er mál sem upp kom í apríl mánuði þar sem barn, í gáleysi, hafði innbyrt sælgæti sem innihélt ólögleg fíkniefni. Barnið var flutt á heilbrigðisstofnun og ekki vitað annað en að það muni ná sér að fullu. Svona mál koma því miður upp annað slagið hér á landi og eru þau litin mjög alvarlegum augum. Einhverra hluta vegna er efnum komið fyrir í hlaup „fígúrum“ dulbúið sem sælgæti sem oftast er markaðsett fyrir börn. Rannsókn málsins beinist m.a. að því að kanna hvort um einangrað tilvik á svæðinu sé að ræða en það skal tekið fram að frekari upplýsingar um hana verða ekki gefna á þessu stigi málsins. Lögreglan hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum ófögnuði og ef að fólk hefur upplýsingar þessu tengt að hafa samband við lögreglu. Vakin er athygli á því að slíkar upplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.