Nafn mannsins sem lést í Vestmannaeyjahöfn

Maðurinn sem lést í Vestmannaeyjahöfn 11. apríl hét Ólafur Már Sigmundsson. Hann var fæddur árið 1942 og lætur eftir sig eiginkonu, uppkomin börn, barnabörn og barnabarnabörn.

Ólafur var vélstjóri og réri til sjós frá unga aldri.

Hann lést í Vestmannaeyjahöfn á þriðjudagskvöld eftir að bifreið hans fór í höfnina. Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert