„Þetta á ekki að geta gerst“

Sigmundur Davíð telur Vesturlönd þurfi að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins.
Sigmundur Davíð telur Vesturlönd þurfi að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta á ekki að geta gerst,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og alþingismaður, á Facebook-síðu sína um ákvörðun bresku lögreglunnar að ákæra ekki knattspyrnumanninn Gylfa Þór Sigurðsson fyrir brot gegn ólögráða ein­stak­lingi eftir að hafa haldið honum í farbanni í 637 daga.

Gylfi var handtekinn í júlí árið 2021 vegna gruns um brot gegn ólögráða einstaklingi. Í kjölfarið var honum gert að sæta farbanni. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að ákæra hann ekki og er hann því laus allra mála.

Stöðug bið

„Maðurinn missti vinnu sína og ástríðu, andlit og nafn mannsins voru útmáð og drifið í að fjarlægja allar vörur sem tengdust honum á einhvern hátt úr verslunum. Íslendingar urðu fyrir miklu áfalli, börn og unglingar landsins misstu eina helstu hetju sína.

Landsliðið sem hafði unnið glæsta sigra, sem fylltu okkur stolti og gleði, lenti í uppnámi og náði ekki lengur þeim árangri sem vænst var. Mánuð eftir mánuð var ekkert að frétta af málinu, maðurinn, fjölskylda hans og vinir máttu þola stöðuga bið við hræðilegar aðstæður,“ skrifar Sigmundur Davíð.

Ekki bara raunin í Bretlandi

Segir Sigmundur mikilvægt að réttarkerfið taki ásakanir föstum tökum en ómannúðlegt sé að mál sem þessi dragist um langan tíma.

„Það er mikilvægt að réttarkerfið taki ásakanir föstum tökum en það er ómannúðlegt, bæði gagnvart ákærendum og sakborningum, að mál fái að dragast von úr viti. Ekki hvað síst þegar hinir grunuðu þurfa að þola mikla refsingu á meðan.

Því miður er þetta ekki bara raunin í Bretlandi. Á Íslandi hefur fólk mátt þola óforsvaranlega bið eftir niðurstöðu og oft verið álitið sekt í millitíðinni.“

„Vesturlönd þurfa að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins. Bæði hvað varðar meðferð mála og regluna sem áður var algild: Fólk telst saklaust þar til sekt er sönnuð,“ skrifar Sigmundur að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert