Ný stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, var kosin á aðalfundi félagsins í gær. Arent Orri Jónsson, lögfræðinemi, er nýkjörinn formaður hreyfingarinnar.
Í tilkynningu frá nýkjörinni stjórn segir:
„Það eru spennandi tímar fram undan fyrir Vökuliða og við viljum sérstaklega þakka fráfarandi stjórn fyrir vel unnið starf en það er óhætt að segja að Vaka sé vöknuð aftur. Við hlökkum til að takast á við komandi skólaár og þau verkefni sem því fylgja“.
Stjórnina skipa:
- Formaður: Arent Orri Jónsson, lögfræði
- Varaformaður: Sigurbjörg Guðmundsdóttir, stjórnmálafræði
- Oddviti: Elísabet Sara Gísladóttir, lífeindafræði
- Ritari: Sæþór Már Hinriksson, viðskiptafræði
- Gjaldkeri: Franklín Ernir Kristjánsson, viðskiptafræði
- Skemmtanastjóri: Jens Ingi Andrésson, lögfræði
- Útgáfustjóri: Signý Pála Pálsdóttir, stjórnmálafræði
- Markaðsfulltrúi: Tinna Eyvindardóttir
- Alþjóðafulltrúi: Hannes Lúðvíksson
- Meðstjórnendur: Dagur Kárason (stjórnmálafræði), Magnús Daði Eyjólfsson (viðskiptafræði), Róberta Lilja Ísólfsdóttir (lögfræði) og Valgerður Laufey Guðmundsdóttir (lögfræði)