Fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, árásarmannsins í Blönduóssmálinu svokallaða, segir að ákvörðunin um að kæra ákvörðun héraðssaksóknara, að fella málið niður á grundvelli neyðarvarnar, til embættis ríkissaksóknara, sé fjölskyldunni þungbær og hvorki til þess ætluð að koma höggi á aðra aðstandendur né rífa upp lítt gróin sár.
Fjölskyldan hefur sent frá sér yfirlýsingu með það fyrir augum að árétta ástæður kærunnar.
Segir í yfirlýsingunni að fjölskyldan hafi fengið misvísandi svör og upplýsingagjöf almennt verið ábótavant frá upphafi. Svör frá yfirvöldum hafi ítrekað leitt af sér fleiri spurningar, upplýsingar verið óskýrar, misvísandi og á köflum villandi.
„Við sem aðstandendur verðum að krefjast þess að allt sem getur varpað ljósi á það sem gerðist þennan örlagaríka morgun, verði dregið fram og af því verði lært. Að kæra ákvörðun héraðssaksóknara var því miður eina úrræðið sem stóð okkur til boða.
Okkar von er sú, að málið verði rannsakað enn frekar og að öllum þeim spurningum, sem hægt er að svara, verði svarað,“ eins og segir í yfirlýsingunni.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Að gefnu tilefni…
Vegna þeirra árása og áreitis sem við, fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, höfum orðið fyrir, í kjölfar þess að ákvörðun héraðssaksóknara, um að fella niður rannsókn í máli hans, var kærð til embættis ríkissaksóknara, þann 13. apríl sl., finnum við okkur nauðbeygð til að árétta nokkur mikilvæg atriði.
Sú ákvörðun að kæra ákvörðun héraðssaksóknara var fjölskyldunni afar þungbær. Tilgangurinn er ekki sá að koma höggi á aðra aðstandendur né rífa upp lítt gróin sár. Þvert á móti. Ljóst er að ef önnur úrræði hefðu verið okkur tæk, hefði þessi ákvörðun ekki verið tekin.
Frá upphafi hafa svör til fjölskyldunnar verið misvísandi og upplýsingagjöf almennt ábótavant. Svör sem við höfum fengið frá yfirvöldum, leiða ítrekað af sér enn fleiri spurningar. Upplýsingarnar sem við höfum fengið hafa verið óskýrar, misvísandi og á köflum villandi.
Við sem aðstandendur verðum að krefjast þess allt sem getur varpað ljósi á það sem gerðist þennan örlagaríka morgun, verði dregið fram og af því verði lært. Að kæra ákvörðun héraðssaksóknara var því miður eina úrræðið sem stóð okkur til boða.
Okkur, aðstandendum Brynjars, er ljóst að fjölskylda Evu Hrundar Pétursdóttur varð fyrir hræðilegum missi morguninn 21. ágúst. Samúð okkar vegna þessa á sér engin takmörk. Hingað til höfum við fjölskyldan borið harm okkar í hljóði af virðingu við aðstandendur hennar. Markmið okkar hefur ávallt og einungis verið það að leita sannleikans í málinu. Ekki einungis um það hvað gerðist morguninn 21. ágúst sl., heldur einnig, það sem mikilvægara er, hvað fór úrskeiðis í aðdraganda þessara atburða og svo í kjölfarið. Á sama tíma höfum við reynt að láta sem minnst fyrir okkur fara, í því skyni að valda ekki frekara tilfinningatjóni.
Okkar fjölskylda varð jafnframt fyrir miklum missi vegna þessa harmleiks og við – líkt og önnur fórnarlömb – syrgjum ástvin okkar hvern einasta dag. Sárasti sannleikurinn er þó líklega sá, að við teljum að það hefði verið raunhæft að afstýra atburðarásinni með réttum viðbrögðum, á réttum tíma.
Okkar von er sú, að málið verði rannsakað enn frekar og að öllum þeim spurningum, sem hægt er að svara, verði svarað.