Urður Egilsdóttir
Páll Jónsson, sem hlaut þyngsta dóminn í stóra kókaínmálinu, ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta staðfestir Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi hans, í samtali við mbl.is.
Páll var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir hlut sinn í einu stærsta kókaínmál sem komið hefur upp hér á landi.
Fjórir menn voru dæmdir fyrir að hafa, ásamt óþekktum aðila, ætlað að flytja inn 99,25 kíló af kókaíni hingað til lands frá Brasilíu með viðkomu í Hollandi, þar sem fíkniefnin voru haldlögð af yfirvöldum. Efnin voru falin í sjö trjádrumbum en Páll stóð að baki timbursendingarinnar.
Birgir Halldórsson var dæmdur í átta ára fangelsi, Daði Björnsson var dæmdur í sex ára og sex mánaða fangelsi og Jóhannes Páll Durr var dæmdur í sex ára fangelsi.
Ólafur Örn Svansson, verjandi Birgis, staðfesti í samtali við mbl.is að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfrýjun. Ekki náðist í verjendur Jóhannesar og Daða.