Finnbjörn gefur kost á sér

Finnbjörn Hermannsson.
Finnbjörn Hermannsson. Ljósmynd/Aðsend

Finnbjörn Hermannson hefur ákveðið gefa kost á sér í embætti forseta ASÍ.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Ég hef ákveðið að verða við þeim fjölmörgu áskorunum sem ég hef fengið um að gefa kost á mér í embætti forseta ASÍ. Ég hef verið í forsvari fyrir byggingamenn í 26 ár og lét nýverið af störfum sem formaður Byggiðnar – félags byggingamanna. Ég bý að áratugareynslu af margvíslegum trúnaðarstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar og hef ætíð verið talsmaður samvinnu og sátt,“ segir Finnbjörn í tilkynningunni. 

Stór og samstilltur hópur geti haft meiri áhrif

Hún er svohljóðandi:

„Þegar Alþýðusamband Íslands var stofnað árið 1916 var tilgangurinn sá að auðvelda baráttu verkafólks fyrir bættum kjörum. ASÍ hefur síðan ekki aðeins haft mikil áhrif á kjör félagsfólks aðildarfélaga sambandsins, heldur hefur það í meira en heila öld gegnt mikilvægu hlutverki í þróun samfélagsins. Réttindi sem í dag þykja sjálfsögð, svo sem samningsréttur, réttur til orlofs, uppsagnarfrestur, fæðingarorlof, almannatryggingar og vinnuvernd, er afrakstur samstilltrar baráttu verkafólks fyrri tíma. Alþýðusambandið hefur margsannað að því stærri og samstilltari sem hópurinn er, því meiri áhrif getur hann haft.

Að samfélaginu okkar, og raunar heimsbyggðinni allri, steðja ýmsar hættur um þessar mundir. Heimsfaraldurinn hafði ekki fyrr verið kveðinn í kútinn þegar ein Evrópuþjóð réðist á aðra; stríð sem er ógn við heimsfrið og ekki sér fyrir endann á. Efnahagslegar þrengingar, háir vextir og verðbólga, sem gjarnan fylgja óvissu- og ófriðartímum, herja á okkur sem hér búum. Við glímum nú við miklar verðhækkanir á allri neysluvöru og rýrnun kaupmáttar. Þetta bitnar fyrst og harðast á þeim sem minnst hafa milli handanna.

Það er á sama tíma átakanlegt að sjá að eigendur stórfyrirtækja í landinu og stjórnvöld virðast einhuga um að velta kostnaði yfir á launafólk. Fyrirtæki sem leika lykilhlutverk í gangverki samfélagsins hækka vöruverð óhikað án þess að slá af kröfum um arðsemi og hljóta engar átölur fyrir. Á meðan er ábyrgðinni varpað á vinnandi fólk og vextir hækkaðir til að verja stöðu þeirra sem eiga á kostnað þeirra sem skulda. Húsnæði er gert að markaðsvöru, fremur en mannréttindamáli.

Það er við aðstæður sem þessar sem mikilvægi Alþýðusambands Íslands kemur í ljós. Aðeins í gegnum samstillta baráttu er hægt að snúa þessari þróun við. Það er verkalýðshreyfingunni nauðsynlegt að slíðra sverðin, þétta raðirnar, finna málefnalegan samhljóm og ganga sameinuð til þeirrar baráttu sem fram undan er; baráttunni til varnar lífskjörum, baráttunni fyrir bættum almannahag. Kjarasamningar verða lausir á nýjan leik í upphafi næsta árs. Ef að líkum lætur verður verðbólgan þá búin að gleypa þær launahækkanir sem samið var um á dögunum. Við það getur verkalýðshreyfingin ekki unað. 

Ég hef ákveðið að verða við þeim fjölmörgu áskorunum sem ég hef fengið um að gefa kost á mér í embætti forseta ASÍ. Ég hef verið í forsvari fyrir byggingamenn í 26 ár og lét nýverið af störfum sem formaður Byggiðnar – félags byggingamanna. Ég bý að áratugareynslu af margvíslegum trúnaðarstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar og hef ætíð verið talsmaður samvinnu og sátta. Ég vil leggja mín lóð á vogaskálar þess að verkalýðshreyfingin rísi undir ábyrgð sinni á erfiðum tímum, og standi vörð um kjör vinnandi fólks og sæki fram fyrir bættum lífskjörum okkar allra. Með því að stilla saman strengi í gegnum sterk og öflug heildarsamtök getur verkalýðshreyfingin knúið á um raunverulegar kjarabætur sem halda til frambúðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert