Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur samþykkt kjarasamning við Reykjavíkurborg með 65,2 % atkvæða en atkvæðagreiðslunni lauk í dag á hádegi og hafði staðið frá 14. apríl.
Fram kemur í tilkynningu að á kjörskrá hafi verið 97 og að 72 hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslunni. Nemur það 74,2% hjúkrunarfræðinga hjá Reykjavíkurborg sem tóku þátt.
„Já sögðu 47 eða 65,2%
Nei sögðu 22 eða 30,6%
Þrír, eða 4,2%, tóku ekki afstöðu.
Kjarasamningur undirritaður þann 4. apríl 2023 hefur því verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.
Atkvæðagreiðslu um samning Fíh við ríkið lýkur á hádegi mánudaginn 24. apríl næstkomandi,“ segir í tilkynningu.