Innheimtustofnun sveitarfélaganna var óheimilt að taka innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafna sem stofnunin innheimti á tímabilinu frá nóvember 2018 til desember árið 2021. Mun hún því endurgreiða alls 70 milljónir króna vegna 906 tilvika. Þar af eru um 7 milljónir vegna vaxta. Að meðaltali nemur því endurgreiðslan um 77 þúsund kr. að meðaltali.
„Þegar ný stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga, sem var skipuð í desember 2021, tók við blasti við að verulegur vafi lék á um lögmæti innheimtuþóknana. Ný stjórn tók þá ákvörðun að rukka ekki innheimtuþóknanir á meðan málið var til skoðunar. Í júní 2022 samþykkti stjórnin að leita eftir lögfræðiáliti frá Lagastofnun Háskóla Íslands til að fá úr því skorið hvort lagaheimild hefði verið fyrir því að leggja sérstaka þóknun á innheimtu stofnunarinnar sem beindist að launagreiðendum. Lögfræðiálitið er afdráttarlaust um að slík lagaheimild sé ekki til staðar, og setti Innheimtustofnun sveitarfélaga strax af stað vinnu við að leiðrétta innheimtuþóknun hjá þeim einstaklingum sem höfðu greitt hana,“ segir í tilkynningu frá Innheimtustofnun.
„Þeirri vinnu er nú lokið og hefur hvert tilvik verið kannað sérstaklega og viðeigandi upplýsinga aflað um þau. Í framhaldinu koma þrír möguleikar til greina; skuldajöfnuður að fullu, skuldajöfnuður að hluta og að lokum endurgreiðsla á innheimtugjöldum. Tilvikum dánar- og þrotabúa verður einnig hagað með sama hætti. Allir viðskiptavinir sem eiga rétt á leiðréttingu fá á næstu dögum sent bréf með upplýsingum um næstu skref,“ segir í tilkynningu.
Aldís Hilmarsdóttir, formaður stjórnar Innheimtustofnunar segir að vafi hafi leikið á lögmæti þóknananna. „Að mati nýrrar stjórnar lék verulegur vafi á um lögmæti þess að rukka innheimtuþóknanir og þær hafa ekki verið innheimtar hjá stofnuninni eftir að núverandi stjórn tók við. Við fengum mjög afgerandi lögfræðiálit um að engin lagaheimild væri fyrir hendi og við ætlum að leiðrétta fljótt og vel. Viðskiptavinir stofnunarinnar þurfa ekki að aðhafast neitt, við munum senda bréf á alla einstaklinga sem munu fá leiðréttingu og þar kemur fram hvernig við ætlum að vinna málið,“ er haft eftir Aldísi í tilkynningu.