Fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði fjóra í gæsluvarðhald í kvöld.
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði fjóra í gæsluvarðhald í kvöld. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjórir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í kvöld vegna andlátsins á bílastæði Fjarðar­kaupa í gærkvöldi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldið er til fimmtudagsins 27. apríl og er það veitt á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglu.

Maður­inn sem lét lífið var pólsk­ur og á þrítugs­aldri.

Þeir fjórir sem eru í haldi lögreglu eru all­ir Íslend­ing­ar und­ir tví­tugu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert