Björguðu dreng á Laugarvatni

Frá aðgerðum við Laugarvatn í kvöld.
Frá aðgerðum við Laugarvatn í kvöld. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var kölluð út í kvöld vegna unglingsdrengs sem var á lítilli bátskænu úti á Laugarvatni. 

Útkallið barst klukkan 18.25 en engar árar voru um borð og bátinn rak hratt undan vindi, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

Vindur greip bátinn hratt með sér.
Vindur greip bátinn hratt með sér. Ljósmynd/Landsbjörg

Var við leik í flæðarmálinu

„Hann hafði, ásamt nokkrum félögum, verið að leika sér í flæðarmálinu við Fontana-böðin, þar sem bátskænan lá hálf upp á landi. Þegar hann stökk upp í bátinn, kom á hann skrið, og hann rann út á vatnið, þar sem sterkur vindur greip bátinn strax og hann rak hratt frá landi,“ segir í tilkynningunni.

Klukkan rétt rúmlega 18.30 hafi verið búið að koma björgunarbát út á vatnið, og björgunarfólk hélt út til aðstoðar drengnum.

Ljósmynd/Landsbjörg

Orðinn nokkuð kaldur

„Nokkurt vatn var í kænunni, eftir rigningar, og var hann orðinn nokkuð kaldur þegar björgunarsveitarbáturinn kom að honum. Bátskænan var þá komin alllangt frá landi,“ segir í tilkynningunni.

Drengurinn var tekin um borð í björgunarbátinn og kænan tekin í tog.

Allir voru komnir heilir á húfi í land um klukkan 19.15 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert