Ómar Friðriksson
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands (SGS), er reiðubúinn að taka að sér embætti eins af varaforsetum Alþýðusambandsins fái hann til þess stuðning á framhaldsþinginu sem hefst næstkomandi fimmtudag.
Landsbyggðarfélögin í SGS hafa stillt upp lista með nöfnum fulltrúa sambandsins sem gefa kost á sér í kosningum til forystu ASÍ á þinginu og skilað til kjörnefndar þingsins en á þinginu verða kosnir forseti, þrír varaforsetar og fulltrúar í miðstjórn.
Að sögn Vilhjálms tók Efling ekki þátt í uppstillingunni hjá SGS og skilaði ekki inn neinum tilnefningum fyrir hönd félagsins.
Nánar má lesa um málið í laugardagsblaði Morgunblaðsins