Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og systkini hennar hafa efnt til fimm kílómetra hlaups þann 1. maí, á afmælisdegi móður þeirra. Hlaupið er til styrktar Einstökum börnum og mun helmingur upphæðarinnar rennur til systkinastuðnings og Systkinasmiðjunnar.
Áslaug greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni, en hún heldur hlaupið með systkinum sínum Nínu Kristínu og Magnúsi.
„Öll geta tekið þátt í hlaupinu, engin tímataka, má ganga og hlaupa, með vagn, stól, börn eða bara sjálfan sig. Í boði verður líka að taka styttri hring, aðallega verður þetta gert til skemmtunar,“ skrifar Áslaug á Facebook.
Okkur systkinum langar að bjóða þér að hlaupa með okkur fimm kílómetra á afmælisdegi mömmu okkar 1. maí nk. Við Nína...
Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Sunnudagur, 23. apríl 2023